13mars

Yfirlið...

Góðan og blessaðan daginn krúttin mín...

Ég varð fyrir afskaplega sérkennilegri lífreynslu í dag og ég held mér eigi eftir að vera strítt út af þessu. Þeir sem voru með mér í verklegri lífefnafræði í dag vita hvað ég er að tala um. Þessi tilraun gekk sem sagt út á það að mæla blóðsykurinn í okkur sem náttúrulega fól í sér smá blóðtöku hjá einhverjum þolanda. Ég lenti í því að vera þolandinn í mínum hópi og ég var nú ekkert sérstaklega ánægð með það því mér er svona ekkert sérstaklega vel við nálar eins og þeir sem þekkja mig vita. En þetta var nú samt sem áður voða saklaust, áttum að nota lítinn penna til að stinga smá gat á puttann og kreista blóðið fram. Þeir sem voru þolendur áttu frá klukkan 10.30 þann morgun að fasta og ég fór samviskusamlega eftir því. Svo kom að því að taka fyrsta blóðsýnið og það gekk nú bara fínt að stinga, ekkert vont og svona. Fyrst kom voða lítið blóð og þá lét ég hendina síga niður í smá tíma og þá kom þessi líka fíni blóðdropi en þá fór mér að líða sérkennilega. Ég fékk svaka suð í eyrun, mér sortnaði fyrir augum og tilfinningin í fótunum varð alltaf minni og minni. Kennarinn tók eftir því að ekki var allt með felldu og sagði mér að setjast niður. Svo fór höfuðið á mér að nálgast borðið fyrir framan mig alltaf meir og meir og augnlokin byrjuðu að síga..... já það var að líða yfir mig!!!! Mér varð óglatt og hélt ég væri að fara að æla. Ég ákvað að fara inn á klósett og sem betur fer leið ekki yfir mig á leiðinni því þá hefði ég ábyggilega skollið með höfuðið í gólfið. Ég jafnaði mig þar en guð minn góður hvað þessi yfirliðstilfinning var furðuleg. Ástæðan fyrir þessu gæti verið sú staðreynd að ég var glorhungruð (og ég funkera aldrei vel þegar ég er svöng) eða þá að ég sé svona mikill kjúklingur, að ég hafi bara einfaldlega orðið hrædd við blóðið... samt finnst mér það hæpið því það var ekkert að skelfa mig sérstaklega mikið... !!! ... ég ætlast til þess að frá stríðniskomment, sérstaklega frá Baldri, Bjarka og Tinnu sem voru með mér í tilrauninni í dag... Þetta var nú meira stuðið..

Núna fer verklegt að klárast hjá mér. Eftir þessa viku verð ég búin með allt verklegt í tveimur fögum og þá verð ég bara í verklegu einu sinni í viku... ÞVÍLÍKUR MUNUR...!!!

Svo er próftaflan mín komin. Hún lítur svona út:


Laugardagurinn 28. apríl                     Eðlislyfjafræði

Laugardagurinn 5. maí                        Lífefnafræði Ly 1

Miðvikudagurinn 9. maí                      Lífræn efnafræði 2

Mánudagurinn 14. maí                        Efnagreiningartækni

Ég er mjög hamingjusöm með þessa próftöflu, fínn tími fyrir hvert próf. En það hræðir mig hvað það er stutt í prófin og sú staðreynd að ég er ekkert byrjuð að læra af viti... Jæks...!!

Já og svo er ég byrjuð á fullu í ræktinni. Shit hvað ég er búin að vera dugleg. Það er alltaf svo fáránlega erfitt að byrja en svo þegar maður er byrjaður þá er þetta ekkert mál.

 
Nóg í bili...

Adios....  
13. mars 2007 klukkan 21:56
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
6 athugasemdir
24febrúar

Nei, þetta eru ekki ofsjónir, þetta ER ný færsla...

Sælt veri fólkið, já nei ég er ekki dauð... þetta kallast blogglægð...

Ji minn eini, hvar á ég að byrja? Ætli ég hafi þetta ekki á svona punktaformi:
 

  • Jólin voru frábær (shit hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast). Það var samt mjöööög erfitt að komast heim til mín. Það var ófært daginn sem ég átti pantað flug og svo mætti ég tæplega 7 um morguninn til að vera viss um að komast með fyrsta flugi (það var fyrstur kemur fyrstur fær). Ég var komin upp í flugvél rúmlega 12 að hádegi búin að bíða í um 5 klukkutíma á flugvellinum. Ekki skemmtilegt... en sem betur fer þá beið Egill með mér allan tímann.. J
  • Ég náði öllum prófunum og gekk bara vel... ég er mest stolt af 9,5 í áfanga sem ég lærði í rauninni á 6 dögum. Þessi áfangi heitir Línuleg algebra og tölfræði en ég leit varla í bók allan veturinn, skildi ekki neitt og var eiginlega alveg sama og svo bara tók ég þetta í nefið í prófinu... Góð!!
  • Ég var að fá vinnu í Lyfju í Smáratorgi, verð að vinna þar aukalega með skóla og svo í sumar. Líst mjög vel á þetta.
  • Ég söng oggupons í einu Eurovisionlagi í undankeppninni í ár. Það var í laginu hennar Bríetar Sunnu, gaman að þessuJ
  • Er búin að vera lost yfir LOST þáttunum... var þetta ekki skemmtilega orðað hjá mér? Ég var náttúrulega svakalega á eftir að vera ekki búin að horfa á neina LOST þætti þannig ég bara tók mig til, fékk lánaðar seríur 1 og 2 og horfði á þetta á mettíma... shit hvað þetta er spennandi!!!
  • Er komin með myspace síðu... urlið er www.myspace.com/ragnheidurpalma
  • Áfangarnir sem ég er í þessa önnina eru Lífræn efnafræði 2, Lífefnafræði Ly1, Eðlislyfjafræði og Efnagreiningartækni. Get nú ekki sagt að þetta sé voða skemmtilegt, það sem mér finnst kannski skemmtilegast er verklegt í Lífrænu 2.

 
Þetta var svona það helsta sem mér datt í hug.

Tékkið svo á síðunnni hans Sigga bróður míns, hún er www.siggipalma.com

Þar er hann búinn að setja inn öll lögin sín. Mér finnst hann ótrúlega hæfileikaríkur að geta samið svona falleg lög og sungið svona guðdómlega vel... Hrós Siggi bró, þú ert flottastur...

 
Ég á varla skilið að fá nein komment frá ykkur, ég er búin að vera svo léleg að blogga... en gefið mér smá sjéns... !!!

 
I’m out...


24. febrúar 2007 klukkan 23:24
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
9 athugasemdir
23janúar

....

OMG.... BLOGGANDINN ER AÐ KOMA, ÉG FINN ÞAÐ..... HlæjandiHlæjandiHlæjandi
















                                                                                            ...............OHHH, hann fór Gráta



23. janúar 2007 klukkan 05:35
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
5 athugasemdir
18desember

ÞVÍLÍK VONBRIGÐI...

Fór á Eragon í gærkvöldi, hlakkaði þvílíkt mikið til því mér fannst bókin svo skemmtileg, góðir leikarar í myndinni og svona. En því miður var myndin ekki góð að mínu mati. Ég mæli eindregið með því að fólk lesi bókina í staðinn fyrir að sjá myndina eða þá allavega að lesa bókina áður en farið er á hana í bíó. Auðvitað er erfitt að hafa kvikmyndina alveg eftir bókinni, en mér fannst allt of miklu breytt!! Oft voru þetta lítil atriði sem auðvelt var að hafa á hreinu í myndinni, dæmi um það er að ein mikilvæg kvenpersóna í bókinni á að vera svarthærð, með uppmjó eyru og í svörtum fötum en... hún er með skollitað hár, venjuleg mannaeyru og í ljósum fötum í myndinni. Skrítið.... Og svo er söguþræðinum heldur mikið breytt fyrir minn smekk. En það góða er að ég er búin að sjá góða Eragon mynd... í hausnum á mér;)

Annars er ég bara í fínu standi. Þessi próftíð er búin að vera frekar erfið fyrir mig andlega en mér leið strax betur eftir efnafræðiprófið á fimmtudaginn síðasta. Er bara að læra fyrir síðasta... já SÍÐASTA... prófið:D Ég trúi ekki að ég verði komin heim til mín eftir fjóra daga... er búin að bíða svo lengi eftir þessu. Og tilhugsunin um að sofa út er unaður... er búin að vakna hvern einasta dag í þessari próftíð fyrir klukkan átta á morgnana...

Fór aðeins í gegnum myndirnar mínar áðan og fann mjög svo skemmtilegar og fallegar myndir af mér, er að spá í að deila þeim með ykkur.
Þetta var sem sagt tekið í verklegum tíma í efnafræði...

nörd

Já, maður er flottur i verklegum tímum í efnafræði ;) Gleraugun eru best, það sem maður er hallærislegur með þau. Og svo þarf ég að hafa þau yfir mínum gleraugum sem gerir mig ennþá hallærislegri. Það má nefnilega ekki vera með linsur því alls konar eiturgufur geta smogið bak við linsuna eða komið af stað einhverjum efnhvörfum í linsunni...

nörd
Nörd....

Nörd

Nörd....

nörd
Tók mynd af fallegu kristöllunum sem mynduðust í tilrauninni... nördalegt!!

Well, ætla að fara að koma mér upp í rúm!!

Muna svo að kvitta elskurnarKoss 

Bæbb

18. desember 2006 klukkan 04:24
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
14 athugasemdir
15desember

AAAAAlveg að verða búið...

Jæja, þá er bara eitt próf eftir og það er næsta miðvikudag. Ég verð svo guðslifandi fegin þegar þetta verður búið. Ég er svoooo þreytt andlega... ætla bara að slappa af í kvöld og taka mér dvd og borða nammi. Þegar ég kom heim úr prófinu í dag fór ég að vafra aðeins á youtube að finna fyndin myndbönd, fann að ég þurfti aðeins að létta lundina og þá er ekkert betra en að hlægja allrækilega...!!

Þetta myndband er atriði úr Bruce Almighty. Mér finnst þetta með fyndnustu atriðum í kvikmynd sem ég hef séð...

Fyrir þá sem ekki hafa séð myndina þá er þessi fréttamaður mjög leiðinlegur og óþolandi gaur. Bruce sem er orðinn "almighty" lætur hann gera alls konar vileysu:

http://www.youtube.com/watch?v=WczNKS6ibK4


Svo sendi mamma mér þetta hljóðbrot. Það er úr útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis og það má segja að þessi fréttaflutningur hafi farið aðeins úr böndunum. Ógeðslega fyndið (finnst mér)J

http://www.ismennt.is/not/anno/hlatur.mp3


Ef þið vitið um einhver fyndin myndbönd þá megið þið skilja slóðina eftir í kommentunum. Ef þið vitið ekki um nein fyndin myndbönd þá megið þið samt skilja eftir kveðjuJ Það er svo gaman að sjá hverjir eru að lesa þetta hjá mérJ


Þetta verður ekki lengra í dag.

Þangað til næst... bæ.

15. desember 2006 klukkan 01:41
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
8 athugasemdir
12desember

Sýkla- og veirufræði brjálæðisblogg

Ég er búin að læra í dag í 15 KLUKKUTÍMA, næstum því samfleytt...
Heilinn á mér er svoleiðis stútfullur af veirum, bakteríum, sveppum og snýklum að það hlýtur að fara að bana mér bráðum ef ég fer ekki að drífa mig í háttinn og hvíla heilann aðeins... Útilið á mér núna er sko ekki það hressilegasta!! Gjörsamlega eins og gangandi lík, með blóðhlaupin augu og bauga, veikluleg og aumingjaleg!!...

HVERNIG Í ANDSK Á ÉG AÐ GETA MUNAÐ ÖLL ÞESSI LATNESKU HEITI Á ÞESSUM KVIKINDUM... í þokkabót, hvaða sjúkdómum þær valda, hver eru einkenni, hvernig sjúkdómurinn er greindur á rannsóknarstofu, meðferðir við þeim... og ég veit ekki hvað og hvað!!!??? Tja, ég bara hef ekki hugmynd um það.. en ég vona að eitthvað sé að fara að síast inn í mitt þreytta heilabú... Það er eins gott því annars er ég in deep shit!...

Well, ætla að fara að koma mér upp í rúm. Mig mun ábyggilega dreyma að ég verði étin af sullaveikiorminum eða að ég sé að deyja kvalafullum dauða af völdum Ebola.... eða gjörsamlega að deyja úr niðurgangi af völdum Camphylobacter jejuni... eða útsteypt í bólusóttarbólum!! Já svona er þetta skemmtilegt...

ÉG ER FARIN... það var kannski ekki sniðugt að blogga svona heilasteikt eins og ég er núna en ég læt þetta fljóta.. hehe



12. desember 2006 klukkan 07:10
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
2 athugasemdir
03desember

Fyndin æfing...

Jæja lybbar og aðrir sem eru að drukkna í prófalestri; búnir að sitja við skrifborðið sitt heilu og hálfu dagana, hvít sem lík, með bauga niður á hæla, með áhyggjusvipinn fastan á andlitinu og ég veit ekki hvað og hvað (lýsing á mér)... Núna er kominn tími til að gera smá æfingu og hressa okkur aðeins við ;)

How Smart Is Your Right Foot?


This is so funny that it will boggle your mind. And you will
keep trying it at least 50 more times to see if you can
outsmart your foot. But you can't!!!

1. While sitting at your desk, lift your right foot off the
floor and make clockwise circles with it.

2. Now, while doing this, draw the number "6" in the air
with your right hand. Your foot will change direction!!!

I told you so... And there is nothing you can do about it.
Make sure you pass this on to your friends... They won't be
able to believe it either!!!


Fann þetta á einni síðu sem ég var að skoða, ég gat vel hlegið að sjálfri mér! Ég get þetta ekki ennþá!!!
Annars er þetta allt að hafast hjá mér í lífeðlisfræðinni, er að lesa síðasta kaflann og þá er ég búin að fara yfir allt efnið og glósa upp úr öllum köflunum :D Og þá er bara að rifja þetta upp allt aftur..

Í morgun kláraði ég loksins að lesa Eragon. Núna get ég ekki beðið eftir að sjá myndina, held hún hljóti að vera góð því bókin er frábær!! Auðvitað er hægt að klúðra svona myndum allsvaðalega en miðað við hvað það eru góðir leikarar sem voru tilbúnir að leika í þessari mynd þá gæti það sagt mikið um gæði myndarinnar. Þetta eru m.a. Jeremy Irons, Djimon Hounsou, John Malkovich, Rachel Weisz og Robert Carlyle.



Well, farin að læra aftur...

p.s. munið svo eftir að kvitta elskurnar... Glottandi
03. desember 2006 klukkan 16:36
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
4 athugasemdir
01desember

Læra læra læra...

Já, síðustu dagar eru búnir að einkennast af miklum próflestri. Í dag er einungis vika í fyrsta prófið, en fyrsta prófið er í lífðelisfræði. Mér finnst ekkert mjög leiðinlegt að læra fyrir þetta lífeðlisfræðipróf þar sem mér þykir þetta flest allt mjög áhugavert. Logi, kennarinn í lífeðlisfræði, segir alltaf: "Hva, sjáiði ekki fegurðina í þessu krakkar?", og ég verð nú bara að segja að jú ég sé fegurð í sumu, og þá sérstaklega nýrunum... þau eru rooosalega sniðug.. þvílíkt sem þessi líkami okkar er úthugsaður!! Já ég veit þetta er voða nördalegt en svona er þetta bara.. hehe!! Maður verður nú stundum að fá að lifa sig inn í það sem maður er að læra Glottandi

Annars er það í fréttum að um síðustu helgi voru tónleikar með háskólakórnum og þeir tókust mjög vel. Þetta var virkilega skemmtilegt, sérstaklega af því að við vorum með hljómsveit og einsöngvara og allt Brosandi

Svo gerðist ég mjög hugrökk og feisaði minn mesta ótta, að syngja fyrir framan fullt af fólki. Það er allt öðruvísi þegar maður er að syngja með heilum kór, ekki nærri því jafn scary og að syngja ein. Ég sem sagt var beðin um að syngja með pabba á jólatónleikunum í Seltjarnarneskirkju 23. nóvember síðastliðinn. Það gekk alveg hreint ágætlega en ég get nú ekki neitað því að það var nett stress í gangi. Svo söng bróðir minn líka og gerði það alveg frábærlega vel. Ef einhver hafði hugsað sér að kaupa sér nýja jólaplötu þetta árið þá get ég alveg mælt með jólaplötunni þeirra Mannakorna, hún er mjög skemmtileg...

Í dag eigum við Egill kærastinn minn fjögurra ára sambandsafmæli. Takk fyrir þessi fjögur ár ástin mín og takk fyrir að vera til... Þú ert yndislegur Koss

.......

Jæja þá hef ég friðað samviskuna, er búin að vera með eindæmum léleg að blogga. Efast um að ég muni bæta það í próftíðinni ef ég þekki mig rétt... reyni að henda inn einni og einni línu Glottandi



Þangað til næst,



01. desember 2006 klukkan 23:12
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
7 athugasemdir
18nóvember

13 stiga FROST... nei hættu nú alveg, þetter orðið fínt!!!!!!

Já það er sko búið að vera kalt undanfarið, mér fannst 7 stiga frostið sem er búið að vera upp á síðkastið vera alveg meira en nóg en 13 stig... kommon!!! Ojj, eins gott að það komi ekki vindur ofan í þetta, þá fara handbökin á mér alveg í rúst.. er komin með einhverskonar "frostskemmdir" á hendurnar... uss!!!

Ég varð bara aðeins að kveinka mér..

Annars er mamma að koma í dag og verður í heilar tvær vikur, sem mér finnst náttúrulega alveg frábært!!
Ætla að halda áfram að lesa 11. kafla í lífrænu og þá á ég BARA 3 kafla eftir, hallelúja...
Svo er það kannski bíóferð á Bond í kvöld, hlakka til :)

Bæj
18. nóvember 2006 klukkan 17:26
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
8 athugasemdir
09nóvember

Kominn tími á blogg...

Jáhh, það er blessuð blíðan úti, bara kominn snjór. Hann á nú samt að fara á morgun, það á víst að hlýna á morgun.

Ég er búin að vera mikið uppi í stúdíói hjá pabba að fylgjast með frábærri jólaplötu verða til. Já, Mannakorn eru að fara að gefa út fyrstu jólaplötuna sína og hún verður sko ekki af verri endanum. Síður en svo, þetta er yndisleg jólaplata enda ekki við öðru að búast af þessum frábæru tónlistarmönnum. Ekki skemmdi svo fyrir að ég fékk að syngja eitt lag með honum pabba mínum - það er bara heiður. Svo er von á annarri frábærri plötu en það er frumraun hans bróður míns, Sigga eða Sigga Pálma eins og hann er kallaður í úppinu. Ég get ekki lýst því hvað ég er stolt af stóra bróður, þessi plata er algjör unaður út í gegn. Drengurinn er frábær lagasmiður og svo hefur hann yndislega fallega rödd. Ég varð líka þess heiðurs aðnjótandi að fá að syngja oggupons með honum í einu laginu... Fullt af heiðrum maður!!!

Á döfinni eru svo tónleikar Háskólakórsins þann 25. nóvember, tvennir útgáfutónleikar, aðrir með Mannakornum og hinir með Sigga bró og síðast en ekki síst ................PRÓFIN!!! ójá, prófkvíðinn er sko heldur betur farinn að láta vita af sér!! Fyrsta prófið er 8. des. Svo eru hin prófin 12., 14. og 20. des.

Í gær fór ég í verklega sýkla- og veirufræði. Var alveg með hnútinn í maganum allan tímann því einn partur þessa verklega tíma fólst í því að láta taka úr okkur blóð og athuga mótefnin í því. OG ÉG HATA BLÓÐPRUFUR... mér er svo illa við þær. En ég lifði þetta af, hjúkk!! Var bara alls ekki svo slæmt Glottandi



Ætla að láta þetta duga...
Takk fyrir öll kvittin elskurnar Koss


Bæjó

09. nóvember 2006 klukkan 01:15
Ragnheiður Helga Pálmadóttir
14 athugasemdir

Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ragnheiður Helga Pálmadóttir
  • Staður: Kópavogur
  • Atvinna: Nemi við lyfjafræðideild HÍ
  • Hjúskaparstaða: Í sambúð með mínum heittelskaða Agli

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

NIðurtalning