Smá stress...
Skil vetrarins:- Skila forskrift í Sérhæfðum lyfjaformum: 26. september
- Halda fyrirlestur í Samantekt klínísks náms í apótekum: 1. október
- Ritgerð í Lyfja- og efnafræði náttúruefna 1: 6. október
- Halda fyrirlestur í Lyfja- og efnafræði náttúruefna 1: 13. október
- Ritgerð í Samantekt klínísks náms í apótekum: 15. október
- Ritgerð í Sérhæfðum lyfjaformum: 3. nóvember
- Lokaskýrsla í sérhæfðum lyfjaformum: 12. nóvember
- Plús skýrsluskil í verklegri Lyfjaefnafræði
Svo er skólasókn og verklegt í þremur af fimm námskeiðunum sem ég er í. Svo ætla ég líka að vera í kórnum (kóræfingar 2svar í viku), fara í vísindaferðir, salsakvöld, vera á salsanámskeiði og auðvitað reyna að læra námsefnið og rifja upp og svona.... PANT FÁ NOKKRA AUKAKLUKKUTÍMA Í SÓLARHRINGINN!!!
Annars er ég bara góð 

17. september 2008 klukkan 17:05
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir

Úfff, maður fékk næstum því áfall eftir fyrsta skóladaginn. Það á eftir að vera svaka fjör hjá okkur í vetur. ...Og svo má ekki gleyma fyrirlestrunum tveimur í sérhæfðum lyfjaformum og verkefninu í samþættri sjúkdóma- og lyfhrifafræði. Vá hvað ég væri ekkert á móti því að fá nokkra aukatíma í sólarhinginn, hvar getur maður annars pantað þá? En svo getur maður líka bara sleppt því að sofa, þá ætti þetta að reddast!