02október

....

SJITT HVAÐ ÞAÐ ER MIKIÐ AÐ GERA.... 
Bloggið verður að bíða aðeins. Það kemur bara æsispennandi blogg innan tíðar, þarf að óska ýmsum til hamingju með ýmislegt ;) Verð bara að bíða aðeins með það þangað til þessi svakalega törn er búin...

Bless
02. október 2008 klukkan 10:54
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
3 athugasemdir
26september

Mig DREPlangar á....

... rúmbuworkshop hjá SalsaIceland helgina 3-5. október. En sökum mikilla anna í skólanum, t.d. skil á stórri ritgerð á mánudeginum eftir umrædda helgi, þá kemst ég ekki... 
Viljiði sjá hvað þetta er flottur dans!!! Mér finnst þetta geggjað kúl...

 

Væri hrikalega gaman að geta bætt þessu við salsasporin á dansgólfinu ;) Salsa á nefnilega rætur sínar að rekja í rúmbu...

Annars gott að frétta af mér, blogga meira seinna...:)

P.S. Þið megið alveg skilja eftir ykkur smá spor! Alltaf gaman að sjá hverjir eru að skoða síðuna mína eða hvort það sé einhver yfir höfuð að skoða hana hehe..
26. september 2008 klukkan 11:58
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
2 athugasemdir
18september

VIVA LA SALSA....

Það hefur kannski ekki farið fram hjá mínum nánustu að ég ELSKA salsa... Var að koma af salsanámskeiðinu sem ég skráði mig í og vááá.. þetta er svo gaman!! Salsa Iceland heldur þetta námskeið, ég er búin að setja link inn á síðuna þeirra ef einhver hefur áhuga á starfsemi félagsins. Ég mæli eindregið með því að fólk læri salsa hjá þeim því þau kenna virkilega gott salsa. Var í hálfgerðum bömmer áður en ég fór í tímann því það er svo mikið að gera í skólanum og mér finnst ég ekkert komast áfram og svona. Núna eftir tímann er ég endurnærð og brosi allan hringinn...!! Langar að skella inn einu salsamyndbandi sem mér finnst flott og lagið er líka í uppáhaldi hjá mér... 


18. september 2008 klukkan 22:38
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
Engin athugasemd
17september

Smá stress...

Skil vetrarins: 
  • Skila forskrift í Sérhæfðum lyfjaformum: 26. september
  • Halda fyrirlestur í Samantekt klínísks náms í apótekum: 1. október
  • Ritgerð í Lyfja- og efnafræði náttúruefna 1: 6. október
  • Halda fyrirlestur í Lyfja- og efnafræði náttúruefna 1: 13. október
  • Ritgerð í Samantekt klínísks náms í apótekum: 15. október
  • Ritgerð í Sérhæfðum lyfjaformum: 3. nóvember
  • Lokaskýrsla í sérhæfðum lyfjaformum: 12. nóvember
  • Plús skýrsluskil í verklegri Lyfjaefnafræði
Svo er skólasókn og verklegt í þremur af fimm námskeiðunum sem ég er í. Svo ætla ég líka að vera í kórnum (kóræfingar 2svar í viku), fara í vísindaferðir, salsakvöld, vera á salsanámskeiði og auðvitað reyna að læra námsefnið og rifja upp og svona.... PANT FÁ NOKKRA AUKAKLUKKUTÍMA Í SÓLARHRINGINN!!!

Annars er ég bara góð Hlæjandi


17. september 2008 klukkan 17:05
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
3 athugasemdir
14september

Öpdeit

Jæja lömbin mín (öll 3 hehe)! Ætla að setja inn smá öpdeit á þeim þremur mánuðum sem ég er ekki búin að blogga..

Sumarið leið á svona 10 sekúndum, ég er ekki að grínast! Byrjaði sumarið á því að fara í ferðalag með háskólakórnum til Berlínar og Póllands. Ferðin var hreint út sagt frábær í alla staði. Byrjuðum á því að fara til Berlínar sem mér finnst ferlega skemmtileg borg, mikil menningarborg. Gerðist svo fræg að fara upp í sjónvarpsturninn, en þar var jú afar gott útsýni. Fórum svo til Poznan (sem er heimabær pólskra hjóna sem eru í kórnum). Það sem mér fannst standa upp úr þar var bæjarröltið með Aleksöndru og Marcin en þau sýndu okkur marga merkilega staði og byggingar og fræddu okkur um sögu bæjarins. Fórum m.a. í kaþólska kirkju sem er merkt nr. 0 (kirkjur eru víst flokkaðar eftir glæsileika og 0 er víst flottasta af öllu flottu). Því næst fórum við til Krakár en á leiðinni þangað skruppum við í Auschwitz. Það var eiginlega að mínu mati hápunktur ferðarinnar þótt þetta hafi verið mjög dapurlegt og maður hafi eiginlega verið dofin það sem eftir var dags. En að standa á stað þar sem svona skelfilegur hlutur gerðist og labba í gegnum hliðið með "Arbeit macht frei" áletruninni er ólýsanlegt.. Var eiginlega með hroll og gæsahúð allan tímann...! En síðan komum við til Krakár sem er fallegasta borg sem ég hef séð. Þetta er svona borg sem maður fer með sínum/sinni heittelskuðu til. Mjög svo rómantísk! Skoðuðum dómkirkjuna og höllina uppi á frægri hæð sem man ekki í augnablikinu hvað heitir. Fórum líka að skoða saltnámu og horfðum náttúrulega á Eurovision:) Þá meina ég horfðum því það var ekki hægt að heyra eitt einasta lag fyrir þessum brjáluðu kórfélögum mínum sem sungu og öskruðu með öllum lögunum. Nei ég var ekkert pirruð ehem... hehe :) Það sem kannski skyggði aðeins á ferðina var að ég fékk ekkert sérstaklega skemmtilegar fréttir þarna úti. Ég nefnilega lenti í því í fyrsta skipti á ævinni að falla á prófi. Það varð svona smá sjokk og drama en ég náði samt að njóta þess sem eftir var af ferðainni nokkuð vel :) Fórum að lokum til Varsjár og þar með lauk 10 daga ferðalaginu okkar. 

Þegar heim var komið fór ég að vinna í minni Lyfju á Smáratorgi. Tók upptökupróf og rúllaði því náttúrulega upp:) Útskrifast svo í október með BS og þarf ábyggilega ekki að bíða jafn lengi og bekkjarfélagarnir eftir skírteininu mínu á athöfninni. Maður á alltaf að líta á björtu hliðarnar sjáiði til ;) Ég fór í tvær veiðiferðir með pabba. Eina í Hofsá á Vopnafirði og hina í Reykjadalsá í Reykjadal. Báðar ferðirnar voru mjöööög skemmtilegar þótt fiskarnir hafi ákveðið að halda sig ofan í vatninu og vilja ekki éta það sem Ragnheiður var að bjóða þeim upp á. Fór líka á smá ættarsamkomu í Skagafirði. Þar fór ég í fyrstu fjallgönguna mína. Ég og mamma fórum upp á Mælifellshnjúk og vorum ekkert lítið stoltar þegar upp á tindinn var komið, sérstaklega mamma þar sem þetta hafði verið langþráður draumur að labba upp á þetta ákveðna fjall. Ég var samt svona meira til í að láta ná í okkur með þyrlu upp á tindinn, ekkert sérstaklega heillandi að horfa niður og sjá að maður á eftir að labba ALVEG jafn langa vegalengd og maður labbaði upp á tindinn.. hehe.. við vorum frekar þreyttar en samt algjörar hetjur. 

Ég og Tinna vinkona létum okkur náttúrulega ekki vanta á salsakvöld sumarsins enda forfallnar með meiru! Var að byrja á salsanámskeiði í dag, mínu fyrsta alvöru salsanámskeiði! Líst hrikalega vel á það náttúrulega. Þetta er skemmtilegast í heimi :D:D

Núna er svo bara skólinn byrjaður, finnst ég hafa klárað vorprófin í gær! Ég er sem sagt byrjuð í masternum í lyfjafræði... shiiiiiiiiiiiiit hvað þetta líður hratt!! Áfangarnir sem ég er í núna eru Lyfja- og efnafræði náttúruefna I, Lyfjaefnafræði II, Sérhæfð lyfjaform, Samþætt sjúkdóma- og lyfhrifafræði II og Samantekt klínísks náms í apótekum. Námsefnið leggst bara vel í mig en þetta verður sjúk önn. Ætla að reyna eins og ég get að missa ekki vitið svo ég þurfi ekki innlögn á geðdeild eða eitthvað! Maður verður bara að gjöra svo vel að vera skipulagðari en seinustu ár. T.d. að eyða ekki óeðlilega miklum tíma að skrifa bloggfærslu.... ehem.. maður ætti kannski að reyna að læra eitthvað (*hóst*).. 





14. september 2008 klukkan 21:00
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
3 athugasemdir
14maí

Ég á mér draum....

... um að verða betri bloggari. Ekki samt að fara að gerast alveg á næstunni, en kannski rætist draumurinn einhverntíman;)

Smá öppdeit: 
  • Er að klára síðasta prófið á morgun :) Það verður ljúft.
  • Fer til Þýskalands á sunnudaginn með Háskólakórnum, verðum í 10 daga á ferðalagi um Þýskaland og Pólland. Hlakka svo til :)
  • Verð að vinna í sumar áfram í Lyfju í Smáratorgi. 
Allavega, ef einhver kíkir ennþá hér inn þá má sá hinn sami skilja eftir sig smá spor af því að ég var svo dugleg að setja inn nokkrar línur. 

En jæja
LÆRA.... 

14. maí 2008 klukkan 10:03
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
2 athugasemdir
18febrúar

Tvö lög...

Jó wazzup...
Langaði bara að deila með ykkur tveimur lögum sem ég er þessa dagana mikið að hlusta á. Þetta eru lög sungin af tveimur ungstirnum, sú fyrri er Sonya Kitchell og sú seinni er Adele. Mér finnst þær algjört æði!!

Það er því miður ekki til neitt myndband við lagið hennar Sonyu en það var einhver búinn að búa til svona slides með laginu þannig að ég notaði það bara...






Lofa svo að koma með smá færslu um það sem ég er búin að gera síðan í jólafríinu... já svo langt er síðan ég bloggaði síðast, öss!!

Later....
Glottandi
18. febrúar 2008 klukkan 20:57
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
3 athugasemdir
14febrúar

Ert ţú 90's krakki?

Rakst á þetta á einni síðu og fannst þetta svolítið skemmtilegt.
Hver man ekki eftir þessu síðan maður var lítill (þ.e.a.s. ef maður er 90's kid):


Þú ert 90´s krakki ef...


Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstum því öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið.. hahaha vá hvað ég kannast við þennan!

Þú manst eftir því þegar Super Nintendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr ...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt

Enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu


Já tímarnir hafa svo sannarlega breyst ;)
14. febrúar 2008 klukkan 12:00
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
2 athugasemdir
12febrúar

...

Fjúff, ég fann rotnunarlykt þegar ég opnaði síðuna... án djóks!!!

Því miður hefur bara bloggandinn yfirgefið mig, ég vona að hann komi aftur.
Kannski blogga ég smá þegar þessi hrikalega verkefnatörn er búin, hver veit!!



12. febrúar 2008 klukkan 19:47
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
1 athugasemd
19desember

Nóbelsverđlaunasaga kórs HÍ

Birna
mið 05.des
14:05
... og mér leiðist. Komum í leik yfir prófasteikinni. Ég ætla að byrja að segja sögu sem þið klárið. Ég byrja á einni setningu í boði Ellu Rósu litlu frænku, næsti á að klára setninguna og byrja á næstu og svo koll af kolli, ok?

Einu sinni var gamall kall í sundi sem datt á bossann þegar....
Kristján Haukur
mið 05.des
14:32
hann var að hlaupa að útilauginni vegna þess að...
harpa
mið 05.des
15:17
hann hafði gleymt að fara í sundskýluna en...
Andri
mið 05.des
16:00
hún var einmitt antík sundskýla frá sjötta áratugnum sem hafði...
Hrafnkell
mið 05.des
16:05
fokið til landsins sama ár og...
sophie
mið 05.des
16:15
Emma epli, Bogi brómber, Kalli kartafla, Pála púrra og Mangi maískólfur........
Einar Steinn
mið 05.des
17:00
... boruðu í nefið með tréfæti. Atfur á móti...
Telma
mið 05.des
18:45
sá kallinn svolítið undarlegt þar sem hann sat skýlulaus á harðri steypunni við sundlaugarbakkann, því fram hjá honum ...
Einar
mið 05.des
21:29
... gekk miðaldra maður með staurfót, krók í stað hægri handar og lepp fyrir vinstra auga. Maðurinn sá tók sveig af rommflösku og tilkynnti: "Cpt. Morgan lýsir því hér yfir að sundlaug þessi sem og restina af Íslandi sé hér með komin undir hans stjórn og því mun...
Sverrir Már
mið 05.des
23:45
... sundlaug þessi verða fyllt af kampavíni, ís og jarðarberjum, svo hann geti...
Þórarinn
fim 06.des
00:15
loksins baðað gæluhvalinn sinn, Fjalar, upp úr einhverju almennilegu, og jafnframt...
Kalli
fim 06.des
21:38
...þvegið sér sjálfur því hann hefur lyktað af rommi síðan...
Einar
fim 06.des
22:37
... síðast. En nú voru góð ráð dýr þannig að beri, gamli kallinn á sundlaugarbakkanum spratt á fætur og ýtti á neyðarhnapp sem virkjaði Batmanmerkið hennar Yoko Ono í Viðey sem gerði það að verkum...
Birna
fim 06.des
23:33
.. að kærleiksbirnirnir komu svífandi frá himnum sitjandi á stóru svörtu töfrateppi. Þeir voru orðnir leiðir á kærleiksbjarna-störunni og drógu upp...
Kristján Haukur
fös 07.des
03:51
farsímann til að hringja í vini sína, stubbanna sem komu glaðir og tóku strumpanna með, strumparnir dönsuðu í kringum kallinn og stubbarnir bentu á hann og hlógu. Karlinum líkaði frekar illa við þetta og tók því upp á að...
Andri
fös 07.des
11:02
... afhjúpa sitt rétta sjálf, en hann var einmitt sjálfur Davíð Oddsson í dulargervi. Davíð ...
Heiða Björk
fös 07.des
21:30
ákvað að fara uppúr vegna þess að þetta var orðinn hundleiðinleg sundferð.
Kristján Haukur
lau 08.des
09:35
Hann hringdi í Kjartan, vonda galdrakallinn og bauð honum í mat. Í forrétt voru steiktir stubbar á teini fylltir með strumpum og kærleiksbjarnakjöti...
Sverrir Már
lau 08.des
10:00
...í aðalrétt voru gíraffalæri með súkkulaði og harðfiski og naglasúpa í eftirrétt, borið fram með víni sem hann bjó til sjálfur úr vatni. Þeir...
Aðalsteinn
lau 08.des
14:41
nutu þessara veislukosta vel, meðan Grýlurnar spiluðu ljúfa kammertónlist í bakgrunninum. En .....
Heiða Björk
lau 08.des
15:37
allt í einu!!!!!!!!
Einar Steinn
lau 08.des
19:32
Birtust Búbbarnir, sem eru jafnvel enn afstyrmilegri óféti en Kærleiksbirnirnir og Stubbarnir til samans og höfðu undanfarið fjölgað sér eins og kanínur. Þeir birtust eins og versta rottuplága, verri raunar, rottur hefði mátt þola. Nú voru góð ráð dýr, en Davíð hafði ráð undir rifi hverju og sýndi þeim hvar hann keypti jóölið með því að...
Birna
lau 08.des
19:45
... að draga hann út og míga yfir þá alla! Búbbarnir voru ekki parsáttir og drógu upp heftara og heftuðu hálsmálið á skyrtunni hans Davíðs yfir hausinn á honum svo hann sá ekki neitt. Davíð fálmaði áfram í gegnum pláguna eins og fötluð fluga þangað til hann rakst í...
Katrín G
lau 08.des
23:51
...eitthvað gult og rautt. Kom þá í ljós að þetta var enginn annar en bíllinn hans Dodda! En Doddi var ekki við stýrið; það var Kanapinn sem...
Bidda
sun 09.des
00:17
hafði sloppið við migubununa en þess í stað...
Heiða Björk
sun 09.des
13:24
ringdi yfir hann froskum.
Hrafnkell
sun 09.des
21:32
og saur.
Bidda
sun 09.des
22:02
En Kanapinn var heppinn því að nú var einmitt verið að opna vesturbæjarlaugina og þar sem hann var orðinn ansi illa lyktandi og með antik sundskýlu í vasanum þá ...
Kristján Haukur
mán 10.des
07:49
setti hann skýluna á hausinn og fór í nuddpottinn. Hann sat í pottinum uns hann varð eins hrukkaður og gömul úldin sveskja sem...
Einar Steinn
mán 10.des
15:49
.sem Grýla hafði spýtt út úr sér. Það hafði Grýla hins vegar ekki gert þennan daginn heldur...
Andri
mán 10.des
16:08
var hún nýkomin af Goldfinger þar sem hún átti sér alter ego sem súludansmærin Lóló. Hún hafði þénað vel á súludansi og ætlaði svo sannarlega að ...
Bidda
mán 10.des
19:13
... lifa hátt það sem eftir væri ævinnar og gerast grænmetisæta í suðurhöfum og hætta þessu barnaáti ...
Katrín G
mán 10.des
23:34
... þar sem Jólakötturinn gamli gat alveg séð um það starf einn. Hann var orðinn feitur, sá gamli, því flest börn fá ekki lengur nýja flík þeim fullorðnu hjá, heldur bara...
Aðalsteinn
þri 11.des
00:16
...snickers og kók og eru farinn að þjást af offitu, enda er jólakötturinn kominn með bullandi kransæðastíflu og með kólestról uppúr öllu valdi. Samt ...
Einar
þri 11.des
11:27
var bót í máli að hann þurfti ekki að hlaupa eins lengi eftir krakkadjöflunum. Er hann var að gæða sér á dreng úr Hlíðunum kemur Stekkjastaur til hans og byrjar að ræða um verkalýðsmál jólasveina sem hafa...
Kristján Haukur
þri 11.des
19:18
ekki fengið laun í aldaraðir heldur bara fengið að safna pokum af óþekkum krökkum í gegnum aldirnar og núorðið nær bara að setja sælgæti í skónna hjá krakkagríslingum. Síðan halda Grýla og Leppalúði þeim föngnum 11 mánuði á ári en hleypa þeim út þennan mánuð til að vinna. Stekkjastaur setur nýja ól á köttinn. Kötturinn virðist fyrst ánægður með ólina þangað til að hann heyrir hana pípa.
Sverrir Már
mið 12.des
14:54
Þá var ólin að söngla með sjálfri sér einhvern jólalagarugling, eins og: "Skyld'það vera jólahjól? Nei, nei, ekki um jólin. Hann sáði, hann sáði í kringum einiberjarunn með gylltan staf í hendi..." o.s.frv. með svoleiðis skrækum rómi og kötturinn vissi ekki hvernig átti að slökkva á þessum fjára. Á endanum fékk kötturinn sig fullsaddan á þessu, sérstaklega þegar ólin söng "Út með köttinn...", að hann...
Aðalsteinn
mið 12.des
15:15
.. tók sig til og fór í ferðalag. Ferðinni var heitið út í höfuðstöðvar Duracell, en ólin var einmitt með batterí frá því fyrirtæki og hélt áfram, og áfram, og áfram, og áfram, og áfram að pípa jólalög. Þegar þar var komið....
Andri
mið 12.des
16:54
sprakk hausinn á kettinum því ólin var í raun með innbyggða sprengju eins og hálsólarnar í Running Man með Arnold Schwarzenegger. Maðurinn sem var fenginn til að hreinsa upp líkið var fyrrverandi tónlistarmaður og ljóðskáld að nafni Don Johnson. Líkinu var hlaðið á trukk og ók Don ...
Einar Steinn
fös 14.des
04:13
Johnson á fund Don Vito Corleone. Don Corleone sat inni á skrifstofu sinni og strauk kettinum sínum þegar Don Johnson kom aðvífandi og heilsaði honum svofelldum orðum:
Birna
fös 14.des
16:24
"Oj maður! Farðu og skeindu þér, það er fokkin viðbjóðsleg fýla af þér"
edda
fös 14.des
17:24
kötturinn hans herra Corleone varð svo móðgaður við þetta athæfi að hann henti kauða út og klóraði á honum rassinn í leiðinni en þá....
Einar Steinn
mán 17.des
02:55
birtist Chuck Norris öllum að óvörum og veitti kettinum ærlegt hringspark svo...
Einar Steinn
þri 18.des
20:38
... allar líkur eru á að sagan hljóti svipuð örlög og kötturinn, nema
Sverrir Már
þri 18.des
23:04
... að einhver eða einhverjir komi með næstu setningu svo við vitum hvað gerist næst, sagan er orðin svo spennandi. Og ef við verðum heppin þá fáum við Nóbelinn, en ef ekki...
Hrafnkell
þri 18.des
23:23
förum við á barinn og fáum okkur hvítvín og kanilsnúða, eins og maðurinn sem...
Bidda
mið 19.des
00:21
... fékk ekki Nóbelinn en varð samt voða glaður og ákvað að ...
Andri
mið 19.des
09:53
... binda enda á ...
Birna
mið 19.des
11:11
... sæluna með tryllingslegum dansi þann 21.des í jólapróflokapartýi með skemmilegum kór.
19. desember 2007 klukkan 17:19
Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Ragnheiđur Helga Pálmadóttir
  • Stađur: Kópavogur
  • Atvinna: Nemi viđ lyfjafrćđideild HÍ
  • Hjúskaparstađa: Í sambúđ međ mínum heittelskađa Agli

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

NIđurtalning